Eddie Chumney á Íslandi Helgina 21.-22. apríl verður Eddie Chumney
með fræðslu í Friðrikskapellu.
Eddie Chumney er með starfið Hebraic Heritage Ministries International og hefur unnið að því árum saman að upplýsa fólk um
hebreskar rætur trúarinnar. Hann hefur skrifað nokkrar bækur, gefið út
ýmiss konar fræðsluefni og er góður og mjög fróður kennari.
Enginn ætti að láta þessa heimsókn framhjá sér fara!
Fræðslustundirnar verða sem hér segir:
Laugardagurinn 21. apríl kl. 14:00
Sunnudagurinn 22. apríl kl. 20:00
Fræðslustund 31. mars 2012
Næsta fræðslustund verður laugardaginn 31.
mars
í Friðrikskapellu og hefst kl. 14:00.
Sigrún Einarsdóttir fjallar um vorhátíðir YHWH,
spádómlegar myndir þeirra
og uppfyllingu í Messíasi.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Frétt 23.03.2012
Byggið er þroskað og sést hefur til nýs tungls í Jerúsalem
þannig að fyrsti mánuður biblíulega tímatalsins er hafinn.
Hér eru dagsetningar hátíðar ósýrðu brauðanna: Við sólsetur 5. apríl - Pesach (páskar)
Við sólsetur 6. apríl - Hátíð ósýrðu brauðanna hefst (Seder)
Við sólsetur 7. apríl - Bikkurim (frumgróðinn)
Við sólsetur 26. maí- Shavuot (viknahátíðin)
Þessa dagana stendur yfir athugun á bygginu í Ísrael og ef það verður
orðið þroskað (aviv) við næsta tunglkomudag hefst fyrsti mánuður
biblíulega ársins, avivmánuður, en ef það er ekki þroskað bætist við
þrettándi mánuðurinn. Nehemia Gordon sendi fréttir af framgangi mála og
eru þær hér fyrir neðan.
The Aviv Search this Thursday and Friday (March 22-23) looks like it is
going to be a hair-raising cliffhanger. I was assuming it would be easy
to find Aviv barley during this year's search. Last year was a Hebrew
leap year and it is extremely rare to have two of these in a row.
However, this past winter has been very wet and cold on Israeli
standards and this may be causing the barley to ripen later. A
preliminary exam of the barley two weeks ago showed it was very young in
its maturation cycle meaning a second leap year is looking more and more
possible. We won't know for sure until we examine the barley later this
week at the end of the Twelfth Biblical month. If we don't find Aviv
barley it will mean that the Feast of Unleavened Bread won't begin until
sunset May 6 (instead of sunset April 6). This year's search has been
made more difficult by Arab terrorists indiscriminately firing rockets
at Israeli civilian targets. One of the areas know from past experience
to ripen earliest is "Kassam Alley," the strip of land surrounding the
Palestinian-occupied Gaza Strip. Please pray we have a safe Aviv Search.
To help support our efforts please make your tax-deductible donation to
Makor Hebrew Foundation, POB 535579, Grand Prairie TX 75053 or at:http://MakorHebrew.org/donations.shtml
Næsta fræðslustund verður laugardaginn 4.
febrúar
í Friðrikskapellu og hefst kl. 14:00.
Að þessu sinni fjallar Sigrún Einarsdóttir um
Efraím og Júda í Gamla testamentinu þar sem segir m.a. frá sögu ættkvíslanna tólf í
Ísrael,
dreifingu þeirra til þjóðanna, hvernig sumar ættkvíslir hafa týnst
og hvernig þær koma aftur til baka.
Þessi fræðsla er sjálfstæður fyrri hluti af tveimur.
Seinni hluti fræðslunnar verður 3. mars og fjallar um
Efraím og Júda í Nýja testamentinu.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
***************************************
Þriðjudaginn 24. janúar sást ekki til tungls í Jerúsalem
vegna skýja.
Sjálfgefinn tunglkomudagur 11. mánaðar var því við sólarlag 25. janúar 2012
Tunglkoma hefur verið staðfest í Jerúsalem kl. 16:48 að staðartíma.
Þar með hefur 9. mánuður biblíulega tímatalsins runnið upp.
***************************************
Fræðslustundir
Torah.is
auglýsir fræðslustundir sem verða nú haldnar í Friðrikskapellu
fyrsta laugardag hvers mánaðar (eða á öðrum auglýstum tímum) í samvinnu við bænasamfélag í Reykjavík
sem Jeannot A. Tsirenge fer fyrir.
Fyrsta fræðslustundin verður í höndum Sigrúnar Einarsdóttur
og ber yfirskriftina "Grunntakturinn í tónverki Jahve."
Sú fræðsla fjallar um nokkur undirstöðuatriði sem hafa
gegnumgangandi gildi í samfélagi okkar við Guð og menn.
Þessi fyrsta fræðslustund í Friðrikskapellu verður haldin
laugardaginn 5. nóvember, hefst klukkan 14:00,
er ókeypis og öllum opin.
***************************************
Tunglkoma 8. mánaðar hefur verið staðfest í Jerúsalem
(28.10.2011). Rosh Chodesh Sameach!
Félagið Zíon, vinir Ísraels, heldur laufskálahátíð 15. október í
samkomusal Samhjálpar, Stangarhyl 3, kl. 14:00. Fjölbreytt dagskrá,
ókeypis aðgangur og allir eru velkomnir.
***************************************
Hausthátíðir! Nú líður að tíma
hausthátíðanna og þegar næsti
tunglkomudagur rennur upp hefst fyrsta hausthátíðin, Yom Teruah
(básúnuhátíðin).
Áætlað er að hægt sé að horfa eftir nýju tungli við sólarlag 29.
september 2011 og ef tunglkomudagur verður staðfestur þann dag,
verða hátíðisdagarnir sem hér segir:
Yom Teruah - hefst við sólarlag
29. september Yom Kippur - hefst við sólarlag
8. október Sukkot - hefst við sólarlag 13.
október Shemini Atzeret - hefst við sólarlag 20.
október
Smella á nöfn hátíðanna til að komast
inn á fræðslu um hverja hátíð fyrir sig.
*************************************** 2. júlí 2011
Tunglkoma hefur verið staðfest í Jerúsalem.
4. mánuður er hafinn.
Blásum inn nýtt biblíulegt ár!
Við sólsetur 4. apríl hefst avívmánuður og biblíulegt nýtt ár.
Við ætlum að hittast kl. 20.00 á hæðinni við möstrin efst á
Útvarpsstöðvarvegi
til að blása í shofar og biðja fyrir komandi ári YHWH.
Shana tova!
Gleðilegt nýtt biblíulegt ár!
***************************************
Seder - páskamáltíð
Þann 18.apríl kl.18:00 munum við snæða saman páskamáltíð YHWH í sal
Samhjálpar, Stangarhyl 3a í umsjá félagsins
Shalom Ísrael.
Sigrún Einarsdóttir og Ragnar Björnsson fara í Orðið á meðan við snæðum lamblæri og meðlæti.
Björg Lárusdóttir mun ásamt fleirum leiða lofgjörð
og Shirley Lavy ætlar að dansa með okkur hebreska dansa.
Verðið er 1.700 krónur á mann og skráning í síma 772-1159.
Athugið að það þarf að skrá sig fyrir
12. apríl.
***************************************
Tunglkoma 1. mánaðar er væntanleg við sólsetur mánudaginn 4. apríl.
Vorhátíðir ganga í garð við sólsetur 18. apríl.
Við sólsetur sunnudaginn
6. mars er áætlaður tunglkomudagur
og þar sem byggið í Ísrael hefur ekki náð réttum þroska (aviv)
verður þessi tunglkomudagur upphaf þrettánda mánaðar.
Avivmánuður hefst ekki fyrr en við næstu tunglkomu eftir það
og páskahátíðin hefst því við sólsetur
18. apríl.
Við færum Nehemia Gordon kærar þakkir fyrir að veita stöðugar
upplýsingar
um ástand byggsins og sjáanlega tunglkomu í Ísrael.
***************************************
Verður byggið aviv?
Við sólsetur sunnudaginn 6. mars er áætlaður
tunglkomudagur og ef byggið í Ísrael hefur náð réttum þroska (aviv) á
þeim tíma mun það marka upphaf fyrsta mánaðar nýs biblíulegs árs. Ef
ekki, bætist þrettándi mánuðurinn við árið og avivmánuður hefst ekki
fyrr en við næstu tunglkomu eftir það.
Nehemia Gordon stendur fyrir rannsókn á
bygginu þessa dagana og hefur ennþá ekki fundið það nógu þroskað.
Sunnudaginn 6. mars verður gerð lokaleit og verða niðurstöðurnar kynntar
hér um leið og þær hafa borist.
2. Mós. 12.1-2; 13.4
Þá mælti YHWH við þá Móse og Aron í Egyptalandi á þessa leið:
Þessi mánuður skal vera upphafsmánuður
hjá yður.
Hann skal vera fyrsti mánuður ársins hjá yður... ...Í
dag farið þér af stað,
í abíb-mánuði.
5. Mós. 16.1
Gæt þess að halda YHWHElóhím
þínum páska í abíbmánuði,
því að í abíbmánuði leiddi YHWHElóhím þinn
þig á náttarþeli út af Egyptalandi.
*************************************** I was there... Glærusýning eftir Noemi sem á
móður sem lifði Helförina. PowerPoint (glærusýning) Opna skjalið og vinstri smella svo með músinni
til að fletta glærunum.
Tunglkoma hefur verið staðfest
í Jerúsalem. Það sást glitta í nýtt tungl í Jerúsalem kl 17:05 að staðartíma
sunnudaginn 7. nóvember 2010 og þar með gekk
níundi biblíulegi mánuðurinn í garð.
Rosh Chodesh Sameach!
Gleðilegan tunglkomudag!
Í níunda mánuðinum er Hanukkah hátíðin haldin hátíðleg
og hefst hún við sólsetur 1. des. (upphaf 25. dags 9. mánaðar).
***************************************
Hér vinstra megin á síðunni er kominn nýr hnappur
„Ýmsir pistlar“
Þar eru birtir ýmsir pistlar á íslensku.
***************************************
Tilkynning hefur borist frá Jerúsalem um
tunglkomu eftir sólsetur 9. október 2010.
8. mánuður er runninn upp. Í tilefni tunglkomunnar var blásið í shofar á
höfuðborgarsvæðinu, Höfn og á Hofsjökli.
Veður var dásamlegt, hlýtt, heiðskírt og lygnt.
***************************************
Tunglkomudagur og Yom Teruah! Myndir
***************************************
Félagið Zíon, vinir Ísraels,
heldur Laufskálahátíð
í samkomusal Samhjálpar, Stangarhyl 3, laugardaginn 25. september, kl. 14.
Fjölbreytt dagskrá:
Þar sem þetta er mesta gleðihátíð Biblíunar,
mun hátíðin einkennast af gleðisöng og tónlist.
Helga Björk Óskarsdóttir
Fanný K. Tryggvadóttir o.fl .
munu gleðja okkur með Ísraelskri tónlist og söng.
Fleiri taka þátt í gleðinni.
Léttar veitingar
Ókeypis aðgangur
Allir velkomnir
Lofið hann með lúðurhljómi. Lofið hann með bumbum
og
gleðidansi.
Allt sem andadrátt hefir lofi Drottin!
Hausthátíðir! Nú líður að tíma
hausthátíðanna og þegar næsti
tunglkomudagur rennur upp hefst fyrsta hausthátíðin, Yom Teruah
(básúnuhátíðin).
Áætlað er að hægt sé að horfa eftir nýju tungli við sólarlag 10.
september 2010 og ef tunglkomudagur verður staðfestur þann dag,
verða hátíðisdagarnir sem hér segir:
Yom Teruah - hefst við sólarlag
10. september Yom Kippur - hefst við sólarlag
19. september Sukkot - hefst við sólarlag 24.
september
Smella á nöfn hátíðanna til að komast
inn á fræðslu um hverja hátíð fyrir sig.
***************************************
Myndir frá tunglkomudegi 6. mánaðar
***************************************
Áætlaður tunglkomudagur 6. mánaðar er við sólsetur 11. ágúst.
Við sólsetur í Jerúsalem 13. júlí sást glitta í tunglrönd
sem boðar fyrsta dag fimmta mánaðar í dagatali YHWH.
***************************************
PRESS RELEASE
Lecture Series in Reykjavik, 14th, 15th and 16th of
June at 19:00-22:00, with Jerusalemite Avi ben
Mordechai: Quickly Solving the Arab/Israeli Middle East
Conflict the Biblical Way: 2 Chronicles 7:13-14 & Mattityahu
(Matthew) 15:3-9.
(Jerusalem, Israel)
- Avi ben Mordechai of Jerusalem Israel, on a 35-City,
three continent biblical lecture tour strongly believes in
fixing the Arab/Israeli Middle East Conflict, but not doing
it in the traditional way of using politics and
diplomacy. Rather, says ben Mordechai, "Israel's
problems are not political; they are spiritual. The Muslim
Arabs, Hezbolah, Hamas, the PA's Abu Mazen and all of their
organizations and their American and European supporters are
not to blame for our problems. Our problems are internal but
they can be solved nearly overnight when we do what the
Bible says to do." According to ben Mordechai, all
Israel - that is Jews and Gentiles who connect themselves to
the biblical mandate of what the Bible calls "Israel," need
to stop pointing the finger at failed peace talks, the
obstinence of the PA (the Palestinian Authority), the
stubborness of Israel, global calls to end violence within
the ranks of Hamas and Hezbolah, etc., as this solves
nothing and never will. The Bible gives a clear and
direct formula for solving all of region's on-going issues.
Boiled down, ben Mordechai's approach is to steer clear of
the political flotsum and jetsam that clutters the real
issues. Says ben Mordechai, "Reworking the 1937 Peel
Commission's 'Two-State Solution' -- an idea in vogue during
the period of the British Mandate of Palestine (and still
strongly supported today) -- will never work because our
problems are deeply rooted in childhood temper tantrums
against the Almighty Eternal One of Israel and until we stop
our antics, our enemies are only going to get stronger and
more bold in buffeting us. When we as a nation, put a
complete end to our religious hypocrisy and stop relying on
third party mediators to fix our problems; mediators who
like to work with political charged language that
is pretentious, insincere, and intellectually
vacuous, and we as a nation turn
around from our national stupidity and rebellion against
Holy Scripture and against the Holy One of Israel, only then
will the nations see changes in this part of the world,
where quite clearly, there is a very powerful battle going
on in the unseen heavens between the sons of Jacob and the
sons of Esau (stories from the book of Genesis)."
International Author and
Lecturer Avi ben Mordechai from Jerusalem Israel shoots
straight and doesn't seem to mince words.
Avi ben
Mordechai will be in Reykjavik to talk about
politics, religion, divine faith and exact biblical word
defintions from the Bible; that are needed to help solve our
nation's spiritual problems first. If you are a pastor or
ministry leader, a Messianic Jew, an Ephramite
"Gentile," a Catholic or anyone from mainline Protestant
Christianity, you will quite likely find ben Mordechai's
perspective challenging, fresh and most interesting.
Contact Sigrun (phone no. 824 8848)
for information on the lectures to be held on June 14th,
15th and 16th at Friðrikskapella við Valsheimilið. The
lectures start at 19:00. Admisssion is free, however a love
offering will be taken.
***************************************
Tunglkoma 4.
mánaðar
Við sólsetuur 13. júní ætti að sjást glitta í tunglrönd
sem boðar fyrsta dag fjórða mánaðar í dagatali YHWH. Myndir frá tunglkomudegi 4.
mánaðar
***************************************
Fyrirlestrar með Avi ben Mordechai í Friðrikskapellu við Valsheimilið, dagana 14., 15. og 16. júní kl. 19-22.
Avi ben Mordechai er fræðimaður Ritningarinnar og síðustu árin hefur
hann
horft í hebreskan grunn Nýja testamentisins
til þess að veita okkur skilning
á ýmsu sem virðist við fyrstu sýn vera mótsagnarkennt.
Meðal annars hefur hann fjallað um Galatabréfið út frá hebreskum
skilningi
á orðum Páls og þeim kringumstæðum sem bréfið var skrifað í.
Einnig hefur Avi fjallað vel um grunnatriði í hebreskum skilningi
á orðum Nýja testamentisins í samhengi Gamla testamentisins.
Nú er hann að koma frá Ísrael til þess að deila innsýn sinni með
okkur
og þetta er spennandi fræðsla sem áhugamenn um Ritninguna
ættu alls ekki að láta framhjá sér fara.
Kennslan fer fram á ensku en verður túlkuð á íslensku.
Ekkert kostar inn og allir eru velkomnir, en
ef þú vilt tryggja þér sæti
er best að skrá þátttöku sína sem fyrst.
Skráðu þig með því að senda tölvupóst á torah@internet.is
eða hringja í Sigrúnu í síma 824 8848.
***************************************
Áætlaður tunglkomudagur er við sólsetur í Jerúsalem
laugardaginn 15. maí.
Þá verður blásið í shofar á ýmsum stöðum.
Vertu með, hvar sem þú ert!
Myndir frá tunglkomu 3. mánaðar biblíulega
tímatalsins
Tunglkoma 2. mánaðar í dagatali YHWH
var staðfest að kvöldi 15. apríl 2010. Blásið var
í shofar á Hornafirði
og einnig við sjávarsíðuna í Laugarnesinu í Reykjavík.
Vorhátíðir YHWH framundan Páskar hefjast við
sólsetur þri. 30. mars (14. avív) - páskafórnin
Hátíð ósýrðu brauðanna hefst við sólsetur mið. 31. mars (15.
avív) - páskamáltíðin
Dagur frumgróðans hefst við sólsetur laug. 3. apríl (18. avív)
Það er gaman að geta þess að hátíðirnar lenda á nákvæmlega sömu
vikudögum í ár
og var þegar Yeshua var krossfestur.
(Lagður í gröfina rétt fyrir sólsetur 14. avív (miðv.)
- var í gröfinni í þrjá daga og þrjár nætur -
Reis upp frá dauðum rétt fyrir sólsetur 18. avív (laug).
En í afturelding fyrsta dag vikunnar komu þær til grafarinnar
með ilmsmyrslin,
sem þær höfðu búið. Þær sáu þá, að steininum hafði verið velt
frá gröfinni,
og þegar þær stigu inn, fundu þær ekki líkama Drottins Yeshua.
... Hann er ekki hér, hann er upp risinn... (Lúk. 24.1-6) Tengill inn á fræðslu um vorhátíðirnar
Vertu ekki feiminn áhorfandi...
slástu í hóp með okkur!
Nýtt
biblíulegt ár blásið inn!
Myndir hér Shana tova!
Gleðilegt nýtt ár!
Blásum inn nýtt ár!
Við sólsetur 17. mars hefst avívmánuður og biblíulegt nýtt ár.
Við ætlum að hittast kl. 20:00 á hæðinni efst á
Útvarpsstöðvarvegi
til að blása í shofar og biðja fyrir komandi ári YHWH. Sjá kort hér:
KORT
Shana tova!
Gleðilegt nýtt ár!
Tunglkoma fyrsta mánaðar
Ekki sást til tungls að
kvöldi 16. mars þannig að sjálfgefinn tunglkomudagur
hefst við sólsetur miðvikudaginn 17. mars 2010 .
Byggið hefur náð réttum þroska (er aviv) og þess vegna markar
þessi tunglkoma
upphaf fyrsta mánaðar í dagatali YHWH og því einnig nýtt
biblíulegt ár.
Byggið er aviv
12. mars 2010 bárust fréttir af því að „aviv“ bygg hefði fundist
í Jórdandal í Ísrael. Þetta þýðir að við sólsetur
16. eða 17. mars hefst
fyrsti biblíulegi mánuðurinn.
2. Mós. 12.1-2; 13.4
Þá mælti
Drottinn við þá Móse og Aron í Egyptalandi á þessa leið:
Þessi mánuður skal vera upphafsmánuður
hjá yður.
Hann skal vera fyrsti mánuður ársins hjá yður... ...Í
dag farið þér af stað,
í abíb-mánuði.
Í
þessum mánuði er púrímhátíðin haldin hátíðleg,
14.-15. dag 12. biblíulega mánaðarins, sem er 1.-2. mars 2010
og hefst því við sólarlag sunnudagskvöldið 28.
feb.
Púrímhátíðin er ekki ein af löghátíðum YHWH
en það er mjög gaman að taka þennan tíma frá
til að lesa í gegnum Esterarbók
og eiga góðar samverustundir með fjölskyldunni.
Mánudaginn 15.
febrúar 2010 sást glitta í nýtt tungl yfir Jerúsalem
kl. 17.56 að staðartíma. Vottar þessarar tunglkomu eru
Willie Ondricek, Nehemia Gordon, Devorah Gordon og Bruce Brill.
Í þessum mánuði er púrímhátíðin haldin hátíðleg,
14.-15. dag 12. biblíulega mánaðarins, sem er 1.-2. mars.
Tunglkoma ellefta biblíulega mánaðarins
hefur verið staðfest
Laugardaginn 16. janúar sást glitta í nýtt tungl yfir Jerúsalem
kl. 17.20 að staðartíma. Vottar þessarar tunglkomu eru
Willie Ondricek, Nehemia Gordon, Devorah Gordon og Tina
Ondricek.
Ekki sást til tungls í Jerúsalem
fimmtudaginn 17. des.
og var því sjálfgefinn tunglkomudagur við sólsetur 18. des.
Nokkrir hittust
við sjávarsíðuna í Laugarnesi til að blása,
einnig var blásið í Breiðholti, í Hveragerði og Höfn í Hornafirði.
Sjá myndir hér
***************************************
Ný bók komin út á íslensku!
Verð bókar er 3.990 kr.
Hægt að biðja um eintak með því að senda mail á
kolbeinn@vonin.ws
og á næstu dögum kemur hún í bókabúðir.
Samverustund
Í tilefni ljósahátíðarinnar (Hanukkah)
höfum við ákveðið að koma saman
sunnudaginn 13. desember 2009, kl. 17:00, til fræðslu og samveru. NAUÐSYNLEGT ER AÐ SKRÁ SIG
ÞVÍ ÞAÐ ER TAKMARKAÐ PLÁSS.
Við komum til með að borða kvöldmat saman, þar sem allir koma
með eitthvað matarkyns á borðið (salöt, brauð, kalt kjöt o.s.frv.) og að
sjálfsögu viljum við heiðra YHWH
með því að hafa hreina fæðu í öndvegi.
Tunglkoma hefur verið staðfest.
Það sást glitta í nýtt tungl í Jerúsalem kl 16:53 að staðartíma
miðvikudaginn 18. nóvember 2009 og þar með gekk
níundi biblíulegi mánuðurinn í garð.
Það var blásið í shofar á ýmsum stöðum
og ánægjulegt er að segja frá því að nú var
einnig blásið í Hveragerði.
"Þitt
fólk er mitt fólk" Bænahúsið og félagið Shalom
Ísrael verða með námskeið laugardaginn 14. nóvember 2009 Efni sem meðal annars er
farið í:
• Vakning meðal Gyðinga og meðbyr með
Ísrael •
Tímamót í sögunni þegar fólk tók stöðu sína • Hvað
eiga gyðingdómur og kristin trú sameiginlegt? •
Hinar týndu ættkvíslir Ísraels
Kennarar:
Kolbeinn Sigurðsson, Rúna Loftsdóttir og Sigrún Einarsdóttir
Námskeiðið verður haldið í húsakynnum
Ekrons að Grensásvegi 16, efstu hæð, Reykjavík og verður frá kl. 10:00
til kl. 16:00 Verð
fyrir námskeiðið er 2.500 kr.
Innifalið í námskeiðsgjaldi er
námskeiðsgögn, kaffi og meðlæti.
Skráning er í síma 699 1986 (Ella) eða með
því að senda póst á kolbeinn@vonin.ws
‐
Takmarkað sætaframboð
‐
Það er mikilvægt að
skilja hvers vegna Ísrael og Gyðingar eru enn og aftur miðpunkturinn í
veraldarsögunni. Við þurfum sem kirkja að skilja spádómstímana sem við
lifum á og verða hæfari samverkamenn Guðs í því að flýta fyrir
uppfyllingu þeirra. Leitum hvers tækifæris til að blessa þá en ekki
bölva þeim.
Guð gaf Abraham fyrirheit: „Ég mun gjöra þig að mikilli þjóð og blessa
þig og gjöra nafn þitt mikið, og blessun skalt þú vera. Ég mun blessa þá
sem þig blessa, en bölva þeim, sem þér formælir, og af þér skulu allar
ættkvíslir blessun hljóta.“
***************************************
Yom Teruah - hófst við sólarlag
20. september Yom Kippur - hófst við sólarlag
29. september Sukkot - hófst við sólarlag 4.
október
***************************************
Hausthátíðir! Nú líður að tíma
hausthátíðanna og þegar næsti
tunglkomudagur rennur upp hefst fyrsta hausthátíðin, Yom Teruah
(básúnuhátíðin).
Áætlað er að hægt sé að horfa eftir nýju tungli við sólarlag 20.
september 2009 og ef tunglkomudagur verður staðfestur þann dag,
verða hátíðisdagarnir sem hér segir:
Yom Teruah - hefst við sólarlag
20. september Yom Kippur - hefst við sólarlag
29. september Sukkot - hefst við sólarlag 4.
október
Smella á nöfn hátíðanna til að komast
inn á fræðslu um hverja hátíð fyrir sig.
Verum vakandi!
***************************************
TUNGLFRÉTTIR
Tunglkoma var staðfest í Jerúsalem við sólarlag 20. september.
Þar með hófst sjöundi mánuður í dagatali skaparans
og fyrsta hausthátíðin, Yom Teruah.
Hátíðinni og tunglkomunni var fagnað með bænum,
fræðslu, samveru, lofgjörð og frábærum mat.
Að sjálfsögðu var líka blásið í hornin af lífs og sálar kröftum.
Bænahúsið í Reykjavík
(House of Prayer Reykjavik)
og Torah.is
tilkynna:
Yom Teruah
(básúnuhátíðinni) og nýju tungli
verður fagnað sunnudagskvöldið 20. september.
Við ætlum að hittast í Friðrikskapellu kl. 18:00
þar sem allir koma með eitthvað matarkyns tilbúið á borðið.
Það má bæði vera eitthvað nasl til kvöldverðar
(salöt, brauð, kalt kjöt o.s.frv.) eða kökur til að hafa með
kvöldkaffinu síðar um kvöldið og að sjálfsögu viljum við heiðra
YHWH með því að hafa hreina fæðu í öndvegi. Tengill hér inn á
biblíulega fæðu. Ath.
það þarf að rúlla niður síðuna til að sjá listann.
Við syngjum saman, borðum saman, fáum fræðslu um hátíðina,
fylgjumst með tunglkomu, förum svo og blásum inn nýtt tungl,
nýjan mánuð og Yom Teruah hátíðina
áður en við göngum inn til áframhaldandi gleði.
Allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir.
Það er hægt að hafa samband við Sigrúnu
í síma 824 8848 til að fá upplýsingar.
We will celebrate Yom Teruah (The Feast of Trumpets)
and the New Moon, Sunday, September 20th.
We will meet in Fridrikskapella at 6PM and bring some food with us
to share (f.ex. salad, bread, cold meat) or cakes to share
with the evening coffee. Of course we want to honor YHWH
by bringing clean food according to the Leviticus 11.1-47.
We will sing, eat, hear teaching about the feast,
watch for the New Moon, blow shofars and celebrate.