Fyrsta Makkabeabók Makkabeabækur draga nafn
sitt af frelsishetju Gyðinga, Júdasi Makkabeusi, og bræðrum hans,
Makkabeunum. Fyrsta Makkabeabók er sagnrit sem fjallar um mikið örlaga-
og mótunarskeið í sögu Gyðinga á tímabilinu frá 175–134 f.Kr., þ.e.
tímann frá því að Antíokkus IV Epífanes komst til valda og þar til Símon
æðsti prestur og konungur Gyðinga, bróðir Júdasar Makkabeusar, féll frá.
Þá höfðu Hasmonear, konungsætt Makkabea, tryggt sér völdin og Gyðingum
sjálfstæði. Á þessu tímabili urðu Gyðingar fyrir miklum ofsóknum.
Smella hér til að
lesa Önnur Makkabeabók Önnur Makkabeabók fjallar um sama efni og hin fyrri.
Hún segir frá ofsóknum Antíokkusar IV Epífanesar á hendur Gyðingum á
annarri öld f.Kr. Bókin er útdráttur úr stærra ritverki, söguriti á
grísku í fimm bindum eftir Gyðinginn Jason frá Kýrene. Fyrri hluti
bókarinnar lýsir aðdraganda að ofsóknum Antíokkusar og andspyrnu Gyðinga
gegn tilraunum hans til að innleiða gríska siði og dýrkun framandi guða.
Síðari hluti bókarinnar samsvarar að verulegu leyti efni 3.–7. kafla
Fyrstu Makkabeabókar.
Smella
hér til að lesa
Makkabeabækurnar eru
fengnar
torah@internet.is
|
||
|