Þorir þú að stinga í
stúf
og ganga með skúf?
4. Mósebók 15.38-41
Tala þú við Ísraelsmenn og seg við þá, að þeir skuli gjöra sér
skúfa á skaut klæða sinna, frá kyni til kyns, og festa snúru af
bláum purpura við skautskúfana. Og það skal vera yður
merkiskraut: Þegar þér horfið á það, skuluð þér minnast allra
boðorða YHWH, svo að þér breytið eftir þeim og hlaupið ekki
eftir fýsnum hjarta yðar né augna, en með því leiðist þér til
hjáguðadýrkunar. Þannig skuluð þér muna öll mín boðorð og breyta
eftir þeim og vera heilagir fyrir Elóhím yðar. Ég er YHWH Elóhím
yðar, sem leiddi yður út af Egyptalandi til þess að vera yðar
Elóhím. Ég er YHWH Elóhím yðar.
5. Mósebók 22.12
Þú skalt gjöra þér skúfa á fjögur skaut skikkju þinnar, þeirrar
er þú sveipar um þig.
Ef þú vilt eignast sett af tzitztit
skúfum (fjögur stykki)
skal ég með ánægju senda þér eitt sett í pósti.
Sendu upplýsingar um nafn og heimilisfang á netfangið:
torah@internet.is
Í þeim skúfum sem ég hnýti er blái
þráðurinn vafinn 10 sinnum (yod),
svo 5 sinnum (heh), 6 sinnum (waw) og aftur 5 sinnum (heh).
Það samsvarar tölugildi stafanna (יהוה)
YHWH.
Mér finnst það góð tilhugsun að íklæðast nafni YHWH með því að
bera skúfana sem eiga að minna mig á að halda boðorð hans.
Shalom,
Sigrún
torah@internet.is
|