|  | ||
| 
 
				 
				 Fjórða vorhátíðin 
				– Shavuot (viknahátíðin) 
				 
				Fjórða og síðasta af 
				vorhátíðunum sem ég ætla að tala um hér Í 23. kafla 3. Mósebókar, versi 9-11, segir: 
				-9- YHWH talaði við Móse og sagði: -10- 
				Mæl þú til Ísraelsmanna og seg við þá: Þá er þér komið í land 
				það, sem ég mun gefa yður, og þér skerið þar upp korn, skuluð 
				þér færa presti fyrsta kornbundinið af uppskeru yðar. -11- Og 
				hann skal veifa kornbundininu frammi fyrir YHWH, svo að það afli 
				yður velþóknunar, daginn eftir hvíldardaginn skal presturinn 
				veifa því. 
				Við vorum búin að sjá 
				að uppfylling þessarar hátíðar frumgróðans var þegar Yeshua 
				birtist þeim upprisinn. Hann var frumgróði allra manna. 
				Hann er okkar æðsti 
				prestur og var sjáanleg veififórn 
				Það sem gerðist líka 
				þann dag var m.a. það að Yeshua andaði á lærisveinana og sagði:
				Meðtakið Heilagan anda. 
				(Jóh. 20.19-22) 
				Þetta gerðist á degi 
				frumgróðans sem er fyrri frumgróði 
				
				 Ég trúi því að þetta 
				hafi verið eins og 
				
				3. Mósebók 23.15-17 
				Þeir áttu að færa 
				fyrsta kornbundinið af bygginu sem veififórn fyrsta daginn eftir 
				hvíldardaginn í páskavikunni og byrja að telja frá þeim degi 50 
				daga fram að viknahátíðinni og færa þá frumgróðafórn af 
				hveitiuppskerunni. 
				Lesum líka um 
				viknahátíðina í 5. Mósebók. 
				
				5. Mós. 16.9-11 
				
				5. Mós. 16.16-17 
				Þá skulum við líta á 
				nokkra atburði sem áttu sér stað á þessum tíma 
				Förum í 19. kafla 2. 
				Mósebókar. 
				Móse hafði leitt 
				Ísraelsmenn út af Egyptalandi 
				
				2. Mós 19.10-11 
				
				Þeir undirbjuggu sig 
				með þvotti og helgun Förum nú yfir í Postulasöguna. 
				Yeshua var búinn að 
				segja postulunum að bíða kyrrir uns þeir íklæddust krafti frá 
				hæðum (Lúk. 
				24.49). Í 
				Postulasögunni 1.8 segir hann: 
				„En þér munuð öðlast 
				kraft , er heilagur andi kemur yfir yður og þér munuð verða 
				vottar mínir í Jerúsalem og allri Júdeu, í Samaríu og allt til 
				endimarka jarðarinnar.“
				 
				Í Post. 1.14 sjáum við 
				svo að þau voru öll með einum huga stöðug í bæninni, karlar og 
				konur á meðan þau biðu eftir krafti Þau tóku sig til hliðar í bæn og helgun og biðu YHWH. 
				
				Aftur yfir í 2. 
				Mósebók: 
				Í 2. Mósebók 19.18 
				sjáum við þegar YHWH birtist lýðnum... 
				
				2. Mós. 19.18-20 
				
				YHWH sté niður á 
				fjallið og Móse gekk upp til hans. 
				
				Lítum svo 
				á þetta í Postulasögunni: 
				
				Post 2.1-4 
				(Við köllum þennan dag hvítasunnudag og kom það mun síðar inn í 
				mál okkar, en orðið sem notað er í grískunni er pentecost og 
				þýðir fimmtugasti, hebreska orðið er shavuot og þýðir vikur.) 
				
				 -2-
				Varð þá skyndilega gnýr af himni eins og aðdynjanda 
				sterkviðris og fyllti allt húsið, þar sem þeir voru. -3- Þeim 
				birtust tungur, eins og af eldi væru, er kvísluðust og settust á 
				hvern og einn þeirra. -4- Þeir fylltust allir heilögum anda 
				og tóku að tala öðrum tungum, eins og andinn gaf þeim að mæla. 
				 
				
				Heilagur andi Elóhíms 
				gekk niður til þeirra. 
				
				2. Mós 24.12 
				
				2. Mós 31.18 
				
				Lögmál YHWH var skráð 
				á steintöflur á Sínaífjalli 
				
				En við úthellingu 
				Heilags anda var lögmál YHWH 
				Eins 
				og Jeremía segir: 
				
				Jer. 31.33 
				
				Eins og Páll segir: 2. Kor 3.3 
				
				Boðorðin tíu voru 
				gefin á Sínaífjalli 
				 
				
				GT: Þrjú þúsund manns 
				dóu eftir að hafa óhlýðnast YHWH og reist gullkálfinn til að 
				tilbiðja þar sem þeim leiddist biðin eftir Móse niður af 
				fjallinu þar sem hann var frammi fyrir Elóhím að sækja 
				lögmálið... 
				(2. Mós 32.28) 
				 
				
				NT: Þrjú 
				þúsund meðtaka fagnaðarerindið og verða hólpnir... 
				
				Post. 2.41 
				
				Brauðin tvö með 
				súrdeigi (3. Mós. 23.15-17) 
				 
				
				Á páskahátíðinni mátti ekkert súrdeig finnast hjá Ísraelsmönnum 
				og ósýrða brauðið er táknmynd upp á Yeshua sem engin synd fannst 
				hjá. 
				
				Aftur á móti eru þessi tvö súrdeigsbrauð táknmynd upp á okkur, 
				þ.e. annað upp á Ísraelsmenn (söfnuðinn sem fæddist við Sínaí) 
				og hitt upp á söfnuð þeirra sem trúa á Yeshua (söfnuðinn sem 
				fæddist í Síon á hvítasunnudag.) 
				Við erum syndugur 
				lýður þótt við séum heilög frammi fyrir YHWH. Það er súrdeig í 
				lífi okkar en í Yeshua erum við réttlætt frammi fyrir YHWH og 
				erum frátekinn lýður, honum til handa. Þessi 
				tvö brauð sýna söfnuðina tvo sem renna saman í eitt í Yeshua. 
				Tímasetning YHWH er 
				engin tilviljun. Á viknahátíðinni komu Gyðingar til Jerúsalem 
				til að færa fórnir sínar og þarna voru þeir samankomnir þegar 
				heilögum anda var úthellt og urðu vitni að hræringunum 
				Þótt brauðin tvö væru 
				úr súrdeigi sá YHWH þau sem heilaga fórn. Við syndgum ennþá 
				margvíslega frammi fyrir Elóhím þrátt fyrir að við trúum á 
				Yeshua en þar sem við elskum hann og leitumst eftir því að þjóna 
				honum af öllu hjarta og hlýða boðum hans, sér hann okkur sem 
				réttlát. Við réttlætumst í Yeshua, fyrir blóð lambsins sem var 
				hið ósýrða brauð. 
				Þegar við tökum á móti 
				Yeshua inn í líf okkar fáum við allt sem hann er, en svo fer það 
				eftir því hvað hann fær mikið af okkur hversu mikið af honum 
				birtist í lífi okkar. 
				
				Róm. 12.1-2 
				 
 
				 
 
 
		 torah@internet.is 
 | ||